Innilaug og Innanbæjarstrætó

Innilaug og Innanbæjarstrætó

Hugmynd 1: Veit svo sem ekki hvar laugin ætti að vera en ég tel að það vanti 25/50 metra innilaug (með heitum pottum/barnalaug) fyrir almenning í Garðabæ. Laugin sem er í TM-Höllinni/Mýrinni er ekki ætluð almenningi. Hugmynd 2: Það vantar innanbæjarstrætó í Garðabæ. Sem mundi ganga frá Urriðaholtinu og að Ásgarði með hring um bæinn.

Points

Varðandi tómstundir barna/unglinga og svo fyrir fólk sem er ekki með bíl væri gott að fá innanbæjarstrætóinn í Garðabæ. Varðandi innilaugina: Í miklum kulda væri mjög gott að hafa innilaug, þetta mundi jafnvel líka gert iðkendum sundíþróttarinnar í Garðabæ gott.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information