Leikvellir í Lundahverfi

Leikvellir í Lundahverfi

Það er vöntun á leiksvæðum á opnu svæðunum í Lundahverfi. Þegar skoðað er yfirlitskort yfir leikvelli í hverfum bæjarins má sjá að Lundirnir eru nánast eina hverfið sem hefur ekki leikvöll á opnu svæði í nærumhverfinu.

Points

Engin leiktæki á opnu svæði í Lundahverfi. Eingöngu er um að ræða leikskólann Lundaból sem er opinn allann ársins hring og því er takmarkaður aðgangur að því svæði.

Tek undir þetta, bæði við Lundaból og Í Heiðarlundi eru svæði sem má endurskoða og bæta.

Þessi hugmynd er sambærileg annarri hugmynd sem fer áfram í kosningu í lýðræðisverkefninu Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information