Viðburðahús í Garðabæ

Viðburðahús í Garðabæ

Það væri ótrúlega gaman að geta farið á tónleika, uppistand og aðra minni viðburði hér í Garðabæ. Viðburðar hús á par við Bæjar bíó, Gamla bíó eða hljómahöll væri frábært að hafa í Garðabæ, sérstaklega þar sem við eigum svo mikið af flottu tónlistarfólki. Staðsetning væri best á Garðatorgi nálægt matsölustöðum en miklar framkvæmdir þyrfti til þess að byggja svoleiðis hús þar.

Points

Myndi auka menningu í Garðabæ, sem er skortur af miðað við önnur bæjarfélög. Aukin tækifæri fyrir ungt listafólk til að koma sér á framfæri.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information