Ljúka göngustíg kringum Urriðavatn

Ljúka göngustíg kringum Urriðavatn

Leiðin vestan við Urriðavatn er stikuð en liggur um blautt og þýfti svæði sem er erfitt yfirferðar og ekki fært barnavögnum né hljólum.

Points

Búið er að malbika stíg austan og sunnan við vatnið og er mikil umferð fólks um hann. Það er svekkjandi að komast ekki hringinn heldur þurfa að fara fram og til baka. Ef ekki er hægt að fara í varanlegan stíg á næstunni væri mjög jákvætt ef hægt væri að leggja malarstíg sem first.

Fuglarnir eiga það svæði

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information