Opið skýli á svæðinu milli Túna- og Mýrahverfa

Opið skýli á svæðinu milli Túna- og Mýrahverfa

Opið skýli þar sem hægt er að koma saman og grilla, borða nesti eða bara að koma saman. Sambærilegt skýli er í Guðmundarlundi í Kópavogi. Þetta þyrfti ekki að vera jafnstórt.

Points

Íbúar í hverfunum og skólahópar hvers konar nota þetta svæði mikið. Einnig gætu skátar nýtt sér þetta afdrep. Upplagt fyrir skólagarðana að gera sér glaðan dag og grilla eða nýta til að borða nesti.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information