Innanbæjarumferð

Innanbæjarumferð

Tengja Lyngás, Löngufit og Ásgarð í hringtorgi á núverandi malarsvæði vestan Ásgarðs.Lyngás tekinn undir Hafnarfjarðarveg sem hækkar samhliða lítillega (verður hvort sem er aldrei settur í stokk). Innanbæjarumferðin um Lyngás og þetta nýja hringtorg (..."Lækjartorg"...), umferð inn á Hafnarfjarðarveg um mislæg gatnamót við Hagkaup og í Engidal (sem eru sérstök úrlausnarefni). Samhliða að lagfæra bílaplön við Ásgarð og gera hljóðvarnir.

Points

Léttir á umferðinni. Núverandi hugmyndir ganga útfrá því að gera undirgöng hvort sem er fyrir gangandi rétt austan Lyngáss. Mætti nýta hæðarmun í landi m.a. og nota tækifærið að lagfæra umhverfi Ásgarðs.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information