Sundlaug um helgar - opnunartími

Sundlaug um helgar - opnunartími

Í dag er okkar frábæra sundlaug í Garðabæ opinn alla virka daga, mánudaga til föstudaga 06:30 til 22:00 en á laugardögum og sunnudögum er hún opinn 08:00 til 18:00. Af hverju er styttri opnunartími um helgar einmitt þegar fólk á meiri tíma til að eyða gæða stundum með sínum nánastu? Má ekki hafa sama opnunartíma um helgar eins og á virkum dögum ? Eða allaveganna vera með opið til kl. 22.00. Hún má alveg opna kl. 08.00 Ég er fasta gestur með árskort og það er mikið talað um þetta í lauginni.

Points

Fjölskyldufólk um helgar á meiri tíma til að sinna sínum nánustu og þá er skrítið að opnunartíminn í sundlaugum sé styttri.

Margir eru í fríi um helgar og vilja eyða frítíma sínum í sundi og væri því upplagt að hafa allar sundlaugar í garðabæ opnar lengur um helgar.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information