Gönguslóðar í hrauni

Gönguslóðar í hrauni

Leggja stíga svipaða kindagötum um hraunin

Points

svo væri frábært að fá undirgöng eða göngubrú frá göngustíg fyrir neðan Vífilstaði og yfir að Vífilstaðavatni, mjög mikil og hröð umferð þarna um ekki öruggt fyrir krakka sem vilja kannski hjóla eða labba og kíkja á vatnið

Innan Garðabæjar eru tvö mjög falleg hraunsvæði sem mætti nota miklu meira til útivistar. Þetta er hraunið á milli Garðabæjar og Molduhrauns; hraunið milli Kauptúns og Vífilstaða; og Gálgahraunkið. Æskilegt væri að auðvelda aðgang að þessum frábæru svæðum sem bjóða upp á mikla útivist í náttúrulegu umhverfi. Þarna eru mjög fallegar lautir og klettamyndanir sem fáir njóta. Búa mætti til troðninga svipaða kindagötum sem mundi auðvelda aðgengi.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information