Aðstaða til líkamsræktar fyrir 60+

Aðstaða til líkamsræktar fyrir 60+

Aðstaða fyrir líkamsrækt með tækjum og leikfimi fyrir aldraða undir umsjá fagaðila, þar sem hægt væri að kaupa árskort á hagstæðu verði t.d. 25 - 30 þús.

Points

Allir vita nú til dags að öll hreyfing í hvaða formi sem er : t.d. ganga, sund, æfingar í tækjum og leikfimi fyrir þennan aldurshóp, bætir heilsuna bæði andlega og líkamlega og sparar þannig háar upphæðir í heilbrigðiskerfi bæði fyrir bæ og ríki. Mikilvægt að reynt sé að koma móts við sem allra flesta miðað við getustig. Ég veit að það er frítt í sund í Garðabæ en það hentar ekki endilega öllum. MJÖG MIKILVÆGT

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information