Battavöllur

Battavöllur

Battavöllur á leiksvæðið milli Tjarnarflatar og Markarflatar.

Points

Börnum á grunnskólaaldri hefur fjölgað mikið á undanförnum árum. Í ljósi þess væri tilvalið að fá battavöll miðsvæðis í hverfið (sbr. Ásahverfið) á leiksvæðið milli Tjarnarflatar og Markarflatar þar sem þau gætu stundað knattspyrnu nokkuð óháð veðri og vindum. Í dag eru þar tvö knattspyrnumörk sem nýtast ekki nema rétt yfir sumarmánuðina en með tilkomu battavallar gætu þau stundað knattspyrnu allt árið sem bæði eykur hreyfingu og eflir þau félagslega.

Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verða komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Listi með öllum hugmyndum sem bárust í hugmyndasöfnun ásamt afstöðu matshóps við hverri hugmynd er að finna á vef Garðabæjar. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins er farinn af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information